L'Internationale
Eugène PottierKAPAMPANGAN [PAMPANGO] | |
INTERNASJÓNALINN Þýðing: Magnúsar Ásgeirssonar Til reikningsskila, skortsins fangar, sem skipið heimsins vinnustétt! Nú skjálfa valdsins skorður strangar við skuldakröfu um fólksins rétt! Fylk þér, alþýða, í forystusveitir! Fullan rétt þú sækja skalt! Hið gamla ríki um grundvöll breytir: Vér gildum ekkert, verðum allt. Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Oss frelsa ei heimsins herrar neinir né hjálparvöld á æðri stað: Vort stríð, vort stríð vér eigum einir, og aðrir munu ei vinna það. Gegn þeim afla, sem ránshöndin ræður, Til reisnar vorri lægðu sál, vér blásum anda í bleikar glæður og breytum fjötri í eggjað stál! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Sjá gullsins reigðu glæfrasjóla með gripa og jarðar eignarhald! Hvað lyfti þeim á stjórnarstóla? Vort strit, sem hlaut ei endurgjald! Auður vex þeim án verðleika og raka á vorum lúa og hugarraun, og er vér hrifsum hann til baka, vér hirðum aðeins verkalaun! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Til sigurs, eining öreiganna með alþýðunnar stolta nafn! Þín jörð er óðal allra manna, en ekki fyrir gamm né hrafn! Þeirra kyn skóp þér örbirgð og ótta. En er þeir skuggar hverfa úr sýn einn vordag snemma á feigðarflótta, mun fegurðlífsins verða þín! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Sókn til frelsis er falin vorri fylkingu í dag, unz Internasjónalinn er allra bræðralag! Þjóðviljinn 1. maí 1972, 37. árgangur | Internasyunal Mibangun kauring maluka Sawa tanang pasakitan Malapit tanang mitimawa Ing yatu bandi tane ngan. Magkalag ka king pangagapus Misanmetung tamung sabla Yatu mibabayu neng lubus Itang talan king Upaya. Iti ya ing tauling labanan Tune tamung kalayan Ning Unyun Internasyunal Ning meto ketawan. Iti ya ing tauling labanan Tune tamung kalayan Ning Unyun Internasyunal Ning meto ketawan. Melupig tamu karing batas Uling karen lang makwalta King pamamisali tang pawas Daya ta metiktik na. Alipan maluat tanang bina E mi pamipante naman Ilako ing pamagsamantala Ing e magobra e mangan. Iti ya ing tauling labanan Tune tamung kalayan Ning Unyun Internasyunal Ning meto ketawan. Iti ya ing tauling labanan Tune tamung kalayan Ning Unyun Internasyunal Ning meto ketawan. |