Lingua   

Lög og regla

Bubbi Morthens
Lingua: Islandese


Bubbi Morthens


Hvers vegna eru lög og regla
til að fela hitt og þetta?
Blóðug spor og handjárn smella,
skýrslur segja: "Hann var alltaf að detta".

Börðu hann í bílnum með kylfum og hnúum,
hædd'ann og svívirtu með tungum hrjúfum.
Ekkert sást nema lítið mar
þetta var slys við vorum ekki þar.

Við heyrðum hann kalla, biðja um vatn,
kvartaði líka um honum væri kalt.
Seinna um nóttina talaði út í bláinn.
það var ekki fyrr en í morgun,
að við sáum að hann væri dáinn.

Ekki benda á mig, segir varðstjórinn,
Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn.
Spyrjið þá sem voru á vakt,
Ég ábyrgist þeir munu segja satt.

Hvers vegna eru lög og regla
til að fela hitt og þetta?
Blóðug spor og handjárn smella
skýrslur segja: "Hann var alltaf að detta".

Börðu hann í bílnum með kylfum og hnúum
hædd'ann og svívirtu með tungum hrjúfum.
Ekkert sást nema lítið mar
þetta var slys við vorum ekki þar.

Við heyrðum hann kalla, biðja um vatn,
kvartaði líka um honum væri kalt.
Seinna um nóttina talaði út í bláinn.
það var ekki fyrr en í morgun
að við sáum að hann væri dáinn.

Ekki benda á mig, segir varðstjórinn,
Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn.
Spyrjið þá sem voru á vakt,
Ég ábyrgist þeir munu segja satt.



Pagina principale CCG

Segnalate eventuali errori nei testi o nei commenti a antiwarsongs@gmail.com




hosted by inventati.org