Lingua   

Spilltur heimur

Óðmenn
Lingua: Islandese


Óðmenn


Við lifum öll í spilltum heimi, sem gefur engum grið,
þar sem samvizka er engin til og lítil von um frið,
þar sem tortryggni og sjálfselska sér eiga engin mörk,
þar sem janfrétti og bræðralag eru orð á hvítri örk.

Bisnessmenn þeir vilja stríð svo seljist þeirra vopn,
af þeirra völdum er heimurinn sem skíðlogandi ofn,
og saklaust fólk fyrir þeirra náð er myrt eða svelt í hel,
en hvaða máli skiptir það meðan okkur líður vel.

Við Íslendingar erum þjóð, sem þolir ekki blóð,
Látum hundraðkall í sjóð og teljum okkur góð,
og allar þjóðir eru eins, þær hugsa bara um sig,
og sömu sögu er hægt að segja bæði um þig og mig.

Því þetta er spilltur heimur, spilltur heimur,
Já, þetta er spilltur heimur, spilltur heimur.



Pagina principale CCG

Segnalate eventuali errori nei testi o nei commenti a antiwarsongs@gmail.com




hosted by inventati.org