Language   

Fastur liður

Bubbi Morthens
Language: Icelandic


Bubbi Morthens


Við sjónarhringinn hrannast upp dökk ský
Ég sé dauðans stríðsbumbur berja
ég heyri barnagrát og vopnagný
og fótatak þúsunda manna sem herja
á sannleikann og traðka hann niður
Í stríði er það fastur liður

Ég sé fjölmiðla réttlæta lygina ljóta
að frelsið krefjist fórna, þeir segja.
Klukkan tvö í beinni þeir fara svo að skjóta
og börnin klukkan átta byrja að deyja
og sannleikann traðka þeir niður.
Í stríði er það fastur liður.

Ég sé ofursta mæta og mæra stríðstólin
blóðvellinum fjarri og brosandi fagna
með fjögrastjörnuorðum og böðulsólin
hengir þá sem vilja ekki þagna.
Og sannleikann traðka þeir niður
Í stríði er það fastur liður.

Ég sé fallna stráka stirðnaða og kalda
stjarfa í framan á svipinn hissa
eins og augnablikið þegar byssan falda
skaut kúlunni sem hjartað var dæmt til að kyssa
sæju þeir sannleikann falla niður
Í stríði er það fastur liður.

Ég sé pólitíkusa á fjórum fótum skríða
fylgispaka sem lúbarða rakka
þeir dilla sinni rófu og herrunum hlýða
fá að vera með, fyrir það skal jú þakka
og sannleikann snúa niður.
Í stríði er það fastur liður.



Main Page

Please report any error in lyrics or commentaries to antiwarsongs@gmail.com

Note for non-Italian users: Sorry, though the interface of this website is translated into English, most commentaries and biographies are in Italian and/or in other languages like French, German, Spanish, Russian etc.




hosted by inventati.org